Frábært Viðeyjarnámskeið
Ólafur Jóhann @ 17.57 17/2/04
Á laugardaginn sat ég frábært námskeið í Viðey. Að námskeiðinu stóðu ÆNK, ÆSKR, fræðslusvið Biskupsstofu og KFUM & K .
Þetta er annað árið í röð sem þetta Viðeyjarnámskeið er haldið. Fyrirkomulagið er þannig að öllum leiðtogum í barna- og æskulýðsstarfinu er boðin þátttaka og þess vegna voru í raun nokkur námskeið í gangi á sama tíma í Viðey.
Leiðtogaefnin, 14 – 15 ára sátu námskeið þar sem fjallað var um kristna siðfræði, hvernig trúin getur hjálpað við ýmsar ákvarðanatökur auk leikjafræði.
Á námskeiðinu fyrir 16 – 20 ára var rætt um fyrirmyndahlutverk leiðtogans, almenn samskipti og miðlun kristinna gilda í barna- og æskulýðsstarfinu. Eftir hádegið var þessum hópi skipt í tvennt og fengu þeir sem eru nýbyrjaðir í starfi fræðslu í því hvað það er að vera leiðtogi og hvernig á að skipuleggja stundirnar. Hinn hópurinn fjallaði um ábyrgðarhlutverk leiðtogans auk þess sem lög og reglur sem tengjast börnum og æskulýðsstarfi voru skýrð.
Á því námskeiði sem ég sat, fyrir 20 ára og eldri var rætt um ofbeldi gegn börnum og unglingum auk þess sem fjallað var um skyldur þeirra sem veita barna- og æskulýðsstarfi forstöðu. Þarna voru lög og reglur kynntar og skýrðar auk þess sem ýmis praktsík ráð voru gefin. Ólöf Ásta Farestveit, afbrotafræðingur sá um þennan hluta og gerði það af stakri snilld.
Námskeiðið var að öllu leyti mjög vel heppnað og árangursríkt. Viðeyjarnámskeiðin eru sannarlega komin til að vera.
Raphael @ 17/2/2004 21.28
Einmitt. Það var mjög skemmtilegt, merkilegt og lika bara gaman að vera í Viðey.
)